Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
banner
   fim 22. desember 2022 23:40
Brynjar Ingi Erluson
Man City spilar fimm erfiða leiki á fimmtán dögum
Man City á erfiða dagskrá framundan
Man City á erfiða dagskrá framundan
Mynd: EPA
Englandsmeistarar Manchester City eiga erfiða leikjadagskrá framundan í janúar en liðið mun spila fimm leiki á fimmtán dögum.

Man City vann 3-2 sigur á Liverpool í enska deildabikarnum í kvöld og er nú komið í 8-liða úrslit.

Þetta þýðir að liðið þarf heldur betur að setja í fimmta gír í janúar því liðið mun spila fimm gríðarlega erfiða leiki á fimmtán dögum.

Liðið spilar tvisvar við Chelsea og mun þá einnig mæta Manchester United, Southampton og Tottenham.

Dagskráin hjá Man City:

5. janúar - Man City - Chelsea (Úrvalsdeildin)
8. janúar - Man CIty - Chelsea (Enski bikarinn)
10. - 11. janúar - Southampton - Man City (Deildabikarinn)
14. janúar - Man Utd - Man City (Úrvalsdeildin)
19. janúar - Man City - Tottenham (Úrvalsdeildin)
Athugasemdir
banner