Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 23. janúar 2019 18:52
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Burton og Man City: Aguero og De Bruyne byrja
Kevin de Bruyne og Sergio Aguero byrja báðir
Kevin de Bruyne og Sergio Aguero byrja báðir
Mynd: Getty Images
Burton Albion og Manchester City eigast við í síðari leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins en leikurinn fer fram á heimavelli Burton.

Manchester City breytir liði sínu talsvert en liðið vann 9-0 á Etihad-leikvanginum í fyrri leiknum þar sem Gabriel Jesus skoraði fjögur mörk.

Olieksandr Zinchenko, Fabian Delph, Phil Foden, Danilo, Kevin De Bruyne, Riyad Mahrez og Sergio Aguero byrja allir en auk þeirra eru nokkrir ungir sem fá sénsinn.

Ian Poveda og Eric Garcia, tveir 18 ára gamlir leikmenn byrja leikinn auk þess sem Anijaret Muric er í markinu en hann er 20 ára gamall. Þá er Philippe Sandler einnig að byrja en þessi 21 árs gamli Hollendingur spilaði sinn fyrsta leik fyrir City í 7-0 sigrinum á Rotherham í FA-bikarnum.

Byrjunarlið Burton: Collins; Akins, McFadzean, Turner, McCrory; Quinn, Wallace; Harness, Miller, Templeton; Boyce.

Byrjunarlið Manchester City: Muric, Zinchenko, Sandler, Garcia, Danilo, Delph, Foden, De Bruyne, Poveda, Mahrez, Aguero


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner