Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 23. janúar 2019 17:00
Magnús Már Einarsson
Otamendi ósáttur með fá tækifæri
Otamendi byrjaði 33 leiki á síðasta tímabili.
Otamendi byrjaði 33 leiki á síðasta tímabili.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að Nicolas Otamendi sé ósáttur við fá tækifæri á þessu tímabili.

Otamendi hefur lent undir í samkeppni við Vincent Kompany, John Stones og Aymeric Laporte en hann hefur byrjað einungis átta leiki í úrvalsdeildinni á þessu tímabili samanborið við 33 leiki á síðasta tímabili.

„Hann er ekki ánægður. Ég hef ekki svar fyrir hann. Þegar hann spilar er hann ánægður, þegar hann spilar ekki þá er hann ekki ánægður," sagði Guardiola.

„Þetta á ekki bara við um Otamendi. Þetta er svona hjá öllum. Ég veit ekki hvað ég get gert annað en að vera hreinskilinn við þá."

„Auðvitað er hann ekki ánægður þegar hann spilar ekki. Ég veit að við getum treyst á Nico hvenær sem er því hann er ótrúlegur atvinnumaður og er alltaf klár. Ég er ánægður með hann."

Athugasemdir
banner
banner
banner