Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 23. janúar 2019 11:00
Magnús Már Einarsson
Suarez ekki í hóp hjá Barcelona - Fer hann til Arsenal?
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Denis Suarez er ekki í leikmannahópi Barcelona sem mætir Sevilla í spænska konungsbikarnum í kvöld.

Hinn 25 ára gamli Suarez hefur verið orðaður við Arsenal á lánssamningi.

Ernesto Valverde, þjálfari Barcelona, staðfesti á dögunum að Suarez gæti fengið að róa á önnur mið.

Þær sögusagnir fengu byr undir báða vængi í dag þegar Barcelona tilkynnti að Suarez verði ekki í hóp í kvöld.

Ef Suarez gengur í raðir Arsenal mun hann spila aftur undir stjórn Unai Emery líkt og hjá Sevilla 2014/2015.
Athugasemdir
banner
banner