Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 23. janúar 2019 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tim Howard að fara inn í sitt síðasta tímabil á ferlinum
Mynd: Getty Images
Komandi tímabil í MLS-deildinni verður síðasta tímabil markvarðins Tim Howard á fótboltaferlinum.

Tim Howard er 39 ára gamall en hann er fyrrum markvörður Manchester United og Everton. Hann leikur í dag með Colorado Rapids og hefur gert það frá 2016.

„Ég hlakka mjög til að byrja 2019 tímabilið þar sem það verður mitt síðasta," skrifaði Howard á Twitter.

„Það mun gefast nægur tími til að líta til baka síðar, ég ætla að njóta hverrar mínútu núna."

Howard spilaði með Manchester United frá 2003 til 2006 og með Everton frá 2006 til 2016. Tim Howard á 121 landsleik að baki fyrir bandaríska landsliðið.

MLS-deildin hefst á nýjan leik í byrjun mars.


Athugasemdir
banner
banner