Það eru sex leikir að hefjast í fjórðu umferð enska FA-bikarsins núna klukkan 15:00.
Það eru tvö Íslendingalið í eldlínunni; Blackpool og Millwall.
Blackpool lagði West Brom að velli í vítaspyrnukeppni í síðustu umferð og þeir mæta öðru úrvalsdeildarliði í dag. Daníel Leó Grétarsson er frá vegna meiðsla hjá Blackpool sem sækir Brighton heim.
Jón Daði Böðvarsson byrjar þá á bekknum hjá Millwall sem mætir Bristol City.
Hér að neðan má sjá skoða hvaða leikir það eru sem byrja 15:00.
Leikirnir sem byrja 15:00:
15:00 West Ham - Doncaster (Stöð 2 Sport 2)
15:00 Brighton - Blackpool
15:00 Sheffield United - Plymouth
15:00 Swansea - N. Forest
15:00 Barnsley - Norwich
15:00 Millwall - Bristol City
Athugasemdir