Fotbolti.net
23.02.20 - 19:24
Ívan Guðjón Baldursson

Einkunnir Arsenal og Everton: Auba og Leno bestir

Einkunnir Arsenal og Everton: Auba og Leno bestir
Canon

Mynd: Getty Images

Pierre-Emerick Aubameyang var besti maður vallarins er Arsenal lagði Everton að velli í síðasta leik dagsins í enska boltanum.
Aubameyang skoraði tvö mörk í 3-2 sigri og fær 8 í einkunn frá Sky Sports.

Dominic Calvert-Lewin og Bernd Leno fá sömu einkunn og Aubameyang en Gylfi Þór Sigurðsson fær 6 fyrir sinn þátt á miðju vallarins.

Dani Ceballos fékk mikið lof fyrir sína frammistöðu og einkunnina 7, rétt eins og Bukayo Saka, Shkodran Mustafi, Mesut Özil og Eddie Nketiah.

Portúgalski miðjumaðurinn Andre Gomes fékk þá að spreyta sig í fyrsta sinn eftir erfið meiðsli. Hann spilaði síðustu 32 mínútur leiksins og fékk gult spjald. Einkunn: 6.

Arsenal: Leno (8), Bellerin (6), Mustafi (7), Luiz (6), Saka (7), Xhaka (6), Ceballos (7), Ozil (7), Pepe (6), Aubameyang (8), Nketiah (7).

Everton: Pickford (6), Sidibe (6), Holgate (6), Mina (6), Baines (7), Delph (6), Schneiderlin (6), Sigurdsson (6), Iwobi (6), Richarlison (7), Calvert-Lewin (8)
Varamenn: Gomes (6), Bernard (6)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.