Fotbolti.net
23.02.20 - 15:54
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

England: Þriggja marka sigrar hjá bæði Man Utd og Wolves

Fernandes og Martial voru báðir á skotskónum í dag.

Fernandes og Martial voru báðir á skotskónum í dag.

Canon

Mynd: Getty Images

Tveimur flottum leikjum var að ljúka í ensku úrvalsdeildinni nú rétt í þessu, þar náðu Manchester United og Wolves í mikilvæga sigra í Meistaradeildarbaráttunni.
Staðan var markalaus á Old Trafford þar til á 42. mínútu en þá skoraði Bruno Fernandes úr vítaspyrnu sem hann vann sjálfur eftir að Ben Foster felldi hann í teignum. Fyrsta mark Portúgalans fyrir Rauðu djöflanna.

Í stöðunni 1-0 fyrir heimamönnum komu gestirnir í Watford boltanum í netið, þar var að verki Troy Deeney en VAR dæmdi hins vegar markið af vegna þess að boltinn hafði farið í höndina á leikmanni Watford í aðdragandanum.

Anthony Martial skoraði annað mark heimamanna á 58. mínútu, hann afgreiddi boltann þá snyrtilega í markið. Það var svo Mason Greenwood sem skoraði þriðja mark Manchester United og stigin þrjú í höfn.

Manchester United er nú í 5. sæti með 41 stig, þremur stigum á eftir Chelsea sem er í 4. sæti. Watford er í 19. sæti með 24 stig.

Manchester Utd 3 - 0 Watford
1-0 Bruno Fernandes ('42 , víti)
2-0 Anthony Martial ('58)
3-0 Mason Greenwood ('75)

Lokatölurnar í Wolverhampton voru þær sömu og í Manchester, 3-0 fyrir heimamönnum.

Diogo Jota fylgdi eftir góðum leik í Evrópudeildinni í vikunni þar sem hann skoraði þrjú mörk og skoraði tvö mörk í dag. Mörkin skoraði hann með ellefu mínútna millibili í fyrri hálfleik.

Í upphafi seinni hálfleiks bætti Raul Jimenez við þriðja marki heimamanna.

Úlfarnir eru í 8. sæti með 39 stig en Norwich hins vegar í mjög slæmum málum á botni deildarinnar.

Wolves 3 - 0 Norwich
1-0 Diogo Jota ('19 )
2-0 Diogo Jota ('30 )
3-0 Raul Jimenez ('50 )
Diogo Jota skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Wolves.

Diogo Jota skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Wolves.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal38+4485
2Manchester City38+4278
3Manchester Utd38+1971
4Aston Villa38+765
5Liverpool38+1060
6Bournemouth38+457
7Sunderland38-654
8Brighton38+653
9Brentford38+353
10Chelsea38+652
11Fulham38-452
12Newcastle38-249
13Everton38-349
14Leeds38-747
15Crystal Palace38-1045
16Nott. Forest38-344
17Tottenham38-941
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.