Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. mars 2019 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gerrard skoraði sigurmark á lokamínútunni - Pirlo skoraði beint úr aukaspyrnu
Gerrard og Carragher komu við sögu í dag
Gerrard og Carragher komu við sögu í dag
Mynd: Getty Images
Pirlo skoraði beint úr aukaspyrnu
Pirlo skoraði beint úr aukaspyrnu
Mynd: Getty Images
Goðsagnir hjá Liverpool og AC Milan spiluðu í dag á Anfield. Leikurinn var til styrktar styrktarsjóðs Liverpool sem sér um góðgerðarstarfsemi hjá félaginu.

Leikurinn endaði með 3-2 sigri heimamanna í Liverpool. Leikmenn á borð við Steven Gerrard, Jami Carragher, Sami Hyypia, Robbie Fowler, Dirk Kuyt og Luis Garcia byrjuðu leikinn hjá Liverpool.

Hjá AC Milan voru það leikmenn á borð við Kaka, Andrea Pirlo, Paolo Maldini, Cafu og Alessandro Nesta sem byrjuðu leikinn.

Robbie Fowler, Steven Gerrard og Djibril Cisse skoruðu mörkin fyrir Liverpool. Markið hjá Gerrard kom á 80. mínútu leiksins eða lokamínútu leiksins. markið má sjá hér að neðan.

Andrea Pirlo skoraði úr fallegri aukaspyrnu og Giuseppe Pancaro skoraði seinna mark Milan. Markið hans Pirlo má sjá hér að neðan.





Athugasemdir
banner