Dregið verður í 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla í dag klukkan 15:00 í höfuðstöðvum KSÍ.
Einn leikur er reyndar eftir í 2. umferð keppninnar, Völsungur og Tindastóll mætast annað kvöld.
Pepsi Max-deildarliðin tólf koma núna inn í dráttinn.
Fjögur lið úr Inkasso-deildinni eru fallin úr leik í bikarnum; Víkingur Ólafsvík (tap gegn Úlfunum), Leiknir Reykjavík (tap gegn Fjölni), Þór Akureyri (tap gegn Dalvík/Reyni) og Haukar (tap gegn Keflavík).
Fjögur lið úr neðstu deild, 4. deild, eru í pottinum í dag. Það eru KÁ, Ægir, Úlfarnir og Mídas.

Fótbolti.net sýnir dráttinn í dag í beinni, hann hefst um klukkan 15.
Athugasemdir