Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 23. apríl 2019 18:53
Arnar Helgi Magnússon
Noregur: Fyrsti tapleikur Samúels og félaga
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Odd 1 - 0 Viking
1-0 Marcus Andre Kaasa ('54 )

Samúel Kári Friðjónsson var á sínum stað í byrjunarliði Viking þegar liðið mætti Odd í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Um var að ræða 4. umferð deildarinnar en fyrir leikinn var Viking ekki enn búið að tapa stigum.

Eina mark leiksins kom á 54. mínútu en það gerði Marcus Andre Kaasa fyrir Odd. Samúel Kári var tekinn útaf 85. mínútu leiksins.

Eftir leikinn situr Viking í fjórða sætinu með níu stig eftir fjóra leiki.

Næsti leikur liðsins er gegn Ranheim á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner