Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 23. apríl 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
Faðir Partey staðfestir viðræður við Arsenal
Mynd: Getty Images
Arsenal er í viðræðum við Atletico Madrid um kaup á miðjumanninum Thomas Partey en þetta segir faðir leikmannsins.

Hinn 26 ára gamli Partey hefur verið orðaður við Arsenal undanfarið en hann er með 43 milljóna punda riftunarverð í samningi sínum.

„Ég hringdi í son minn eftir að ég heyrði þessar sögusagnir og hann sagði mér að sögusagnirnar eru sannar," sagði Partey.

„Hann sagði mér að það séu viðræður í gangi við hann og Arsenal. Þetta veltur allt á því hvað Atletico óskar eftir að fá mikið. Ef hann fer til Arsenal þá er það gott. Þeir eiga marga stuðningsmenn í Gana."
Athugasemdir
banner
banner
banner