Heimild: Íslendingavaktin
Ari Freyr Skúlason verður samningslaus í sumar eftir þriggja ára dvöl hjá Lokeren. Hann ætlar að yfirgefa belgíska félagið og hefur hans fyrrum félag, Sundsvall, sýnt honum mikinn áhuga.
Ari Freyr, sem lék fyrir Sundsvall í fimm ár, segist vera ánægður með að heyra af áhuganum en vill prófa eitthvað nýtt.
„Ég er stoltur af áhuganum en mig langar að prófa eitthvað nýtt," sagði Ari samkvæmt Íslendingavaktinni.
Ari er 32 ára gamall og afar fjölhæfur þar sem hann getur leikið sem bakvörður, kantmaður og miðjumaður. Hann á 64 A-landsleiki að baki fyrir Ísland og var fastamaður í liði Lokeren sem féll úr belgísku deildinni.
Athugasemdir