Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 23. maí 2019 11:00
Arnar Daði Arnarsson
Bjarki Steinn framlengir við ÍA
Bjarki Steinn Bjarkason.
Bjarki Steinn Bjarkason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarki Steinn Bjarkason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Knattspyrnufélag ÍA. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Bjarki Steinn er fæddur árið 2000 og er uppalinn í Aftureldingu en hefur spilað með ÍA síðan 2018. Hann hefur spilað 26 leiki með félaginu og skorað í þeim þrjú mörk.

Bjarki var valinn leikmaður umferðarinnar í 4. umferð Pepsi Max-deildarinnar.

„Ég er mjög ánægður með að gera nýjan samning við ÍA. Það er frábær stemning í hópnum og liðsheildin er mjög þétt. Tímabilið hefur byrjað ótrúlega vel og það er virkilega gaman að taka þátt í því," sagði Bjarki Steinn.

Á heimasíðu félagsins segir: „Knattspyrnufélag ÍA fagnar því að náðst hafi nýr samningur við Bjarka Stein og telur að hann verði einn af lykilmönnum liðsins á komandi árum."

Þá er einnig haft eftir Sigurði Þór Sigursteinssyni framkvæmdastjóra KFÍA að þetta sé stór áfangi að ungur og efnilegur leikmaður eins og Bjarki sé búinn að semja til lengri tíma við félagið.

„Þetta sýnir að hann er með metnaðinn í lagi og ætlar sér stóra hluti í framtíðinni," sagði Sigurður Þór Sigursteinsson, framkvæmdastjóri KFÍA.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner