Markvörðurinn Frederik Schram hefur ákveðið að færa sig um set en hann yfirgefur danska B-deildarfélagið Roskilde þar sem hann hefur verið síðustu þrjú ár.
Frederik hefur verið aðalmarkvörður liðsins en það endaði í 9. sæti af tólf liðum á liðnu tímabili.
Frederik kveður Roskilde á Instagram-síðu sinni en ekki er vitað hvert næsta skref hans á ferlinum verður.

Frederik Schram er 24 ára og á fimm A-landsleiki fyrir Ísland. Hann var í landsliðshópnum sem fór á HM í Rússlandi.
Athugasemdir