Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. maí 2019 21:41
Ívan Guðjón Baldursson
Höness staðfestir að Bayern er í viðræðum um kaup á Sane
Mynd: Getty Images
Leroy Sane er á leið til FC Bayern samkvæmt fregnum frá Þýskalandi og er Uli Höness, forseti Bayern, búinn að staðfesta að viðræður eru í gangi.

Sane er 23 ára kantmaður Manchester City en virðist ekki vera búinn að vinna sér inn algjört traust hjá Josep Guardiola. Hann hefur skorað 39 mörk í 133 leikjum frá komu sinni til City fyrir þremur árum.

„Við erum í viðræðum varðandi þennan leikmann," sagði Höness við Süddeutsche Zeitung. Þetta er í fyrsta sinn sem viðræðurnar eru staðfestar af öðru hvoru félagi.

Sane, sem á 19 landsleiki að baki en var ekki valinn með á HM, gæti orðið lykilmaður í ungu liði Bayern. Arjen Robben og Franck Ribery eru að yfirgefa félagið og mun Sane spila með ungstirnum á borð við Serge Gnabry og Kingsley Coman.
Athugasemdir
banner
banner