Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 23. maí 2019 07:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Luis vill taka eitt ár í viðbót með Atletico - Orðaður við PSG og Wolves
Filipe Luis.
Filipe Luis.
Mynd: Getty Images
Framtíð brasilíska vinstri-bakvarðarins Filipe Luis hjá Atletico Madrid er í óvissu, samningur hans við félagið rennur út í sumar. Atletico getur nýtt sér ákvæði í samningi hans sem framlengir samninginn um eitt ár en það hefur ekki verið gert enn sem komið er.

Frönsku meistarnir í PSG eru sagðir áhugasamir um að fá Luis til sín og það er einnig enska félagið Wolves.

Luis sem er 33 ára eru sagður vilja vera áfram hjá Atletico Madrid í að minnsta kosti eitt ár í viðbót og vonar að það gangi eftir.

Það er þó einnig í umræðunni að hann gæti mögulega farið til Flamengo í heimalandinu, Brasilíu. Flamengo er sagt vera tilbúið til að bjóða Luis allt að þriggja ára samning. Það er hins vegar alveg ljóst að ef Atletico framlengir ekki við Luis mun hann hafa mörg tilboð í höndunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner