Luka Modric er að fara að skrifa undir nýjan samning við Real Madrid til sumarsins 2021. Þetta segir spænska blaðið Marca.
Zinedine Zidane vill halda miðjumanninum króatíska í sínum röðum.
Modric vann gullknöttinn, Ballon d’Or, 2018.
Zinedine Zidane vill halda miðjumanninum króatíska í sínum röðum.
Modric vann gullknöttinn, Ballon d’Or, 2018.
Inter reyndi að fá Modric á síðasta ári en nú bendir allt til þess að hann verði áfram á Santiago Bernabeu.
Það er tiltektarsumar framundan hjá Real Madrid eftir erfitt tímabil. Liðið hafnaði í þriðja sæti La Liga og vann ekki titil.
Athugasemdir