Barcelona staðfesti það í gær að þýski markvörðurinn Ter Stegen getur ekki leikið með liðinu í bikarúrslitunum á laugardaginn.
Barcelona mætir Valencia á laugardaginn í úrslitaleik spænska bikarsins.
Ter Stegen er búinn að vera glíma við meisli í hnénu síðustu vikur og leikur því ekki með liðinu gegn Valencia.
Það verður því að öllum líkindum Hollendingurinn Jasper Cillessen sem mun verja mark Barcelona á laugardaginn.
Cillessen lék síðustu þrjá deildarleiki Barcelona á tímabilinu vegna meiðsla Ter Stegen.
Athugasemdir