Hörður Í. 3 - 3 Álafoss
0-1 Guðjón Ingi Ingólfsson Bachmann ('4)
1-1 Hjalti Hermann Gíslason ('7)
2-1 Helgi Hrannar Guðmundsson ('23)
3-1 Dagur Elí Ragnarsson ('44)
3-2 Leifur Kristjánsson ('69)
3-3 Guðjón Ingi Ingólfsson Bachmann ('86)
0-1 Guðjón Ingi Ingólfsson Bachmann ('4)
1-1 Hjalti Hermann Gíslason ('7)
2-1 Helgi Hrannar Guðmundsson ('23)
3-1 Dagur Elí Ragnarsson ('44)
3-2 Leifur Kristjánsson ('69)
3-3 Guðjón Ingi Ingólfsson Bachmann ('86)
Það var einn leikur í 4. deild karla í dag. Hörður og Álafoss áttust við á Ísafirði. Leikurinn var í C-riðli.
Gestirnir í Álafossi komust yfir á fjórðu mínútu þegar Guðjón Ingi Ingólfsson Bachmann skoraði. Hjalti Hermann Gíslason var ekki lengi að jafna fyrir Hörð og náðu heimamenn forystunni á 23. mínútu þegar Helgi Hrannar Guðmundsson skoraði.
Dagur Elí Ragnarsson kom Herði í 3-1 fyrir leikhlé og staðan þægileg fyrir heimamenn í hálfleik.
Álafoss gafst þó ekki upp. Leifur Kristjánsson minnkaði muninn á 69. mínútu og þegar lítið var eftir jafnaði Guðjón Ingi með sínu öðru marki.
Lokatölur 3-3 og jafntefli niðurstaðan. Liðin eru með sjö stig í fjórða og fimmta sæti riðilsins. Hörður hefur leikið sjö leiki og Álafoss sex.
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir