„Þetta var bara geggjað. Það eru ekki mörg lið sem koma hingað og sækja eitthvað. KA er með algjört vígi hér, með frábæra stuðningsmenn. Góð stemmning og góður leikur," sagði Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings Reykjavíkur eftir 4-3 sigur gegn KA á Greifavellinum í dag.
Víkingur er búið að vinna síðustu tvo leiki í deild.
„Sem þjálfari þá leitar maður alltaf að þessum mómentum þar sem liðið þitt er að þroskast með hverjum leik og þetta var svo sannarlega eitt af þeim. Þetta var frábær sigur hjá okkur. Við spiluðum mjög flottan fótbolta á köflum."
Liðið skoraði fjögur mörk í dag og sýndi flotta takta.
„Við vildum halda í okkar konsept, halda boltanum og ná að færa KA liðin aðeins til. Mér fannst það ganga mjög vel fyrstu 70 mínúturnar. Við vorum að skapa færi og finna glufur og gerðum KA mönnum lífið leitt en þeir eru með frábært lið og settu okkur undir mikla pressu undir lokinn. Óþarflega asnalegt að fá þetta þriðja mark á okkur."
KA setti mikla pressu á Víking undir lok leiksins.
„KA liðið er bara mjög sterkt og þeir sóttu hart á okkur. Við hefðum geta verið klókari að nýta betur tækifærin til að fá góð færi þegar þeir voru orðnir fáliðaðir í vörninni, voru búnir að henda öllum nema eldhúsvasknum á okkur. Þetta er bara stríð sem við unnum í dag sem betur fer."
Arnar á bjartsýnn á framhaldið.
„Við erum búnir að vera að spila virkilega vel í sumar og náum að tengja tvo sigra núna. Næst er ÍBV í bikarnum. Ef við vinnum hann þá erum við komnir í fína stöðu í deildinni, komnir í undanúrslit í bikar og Kári mættur á svæðið. Þannig það er bara mjög gott."
Viðtalið er hægt að sjá að heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir