Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 23. júní 2019 16:14
Ester Ósk Árnadóttir
Byrjunarlið KA og Víkings: Ásgeir Sigurgeirs byrjar
Ásgeir er í byrjunarliði KA í fyrsta skipti síðan hann meiddist í leik gegn Val á síðasta ári
Ásgeir er í byrjunarliði KA í fyrsta skipti síðan hann meiddist í leik gegn Val á síðasta ári
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KA og Víkingur Reykjavík eigast við í 9. umferð Pepsí Max deildarinnar nú kl. 17:00 á Greifavellinum á Akureyri.

KA situr í fimmta sæti deildarinnar með 12 stig eins og Fylkir, FH og Stjarnan. Víkingur er í ellefta sæti með 7 stig, jafn mörg stig og Valur. Þeir geta með sigri í dag lyft sér upp úr fallsætinu. Í síðustu umferð vann KA Grindavík og Víkingur náði í sinn fyrsta sigur í deildinni gegn HK á nýjum heimavelli sínum.

KA gerir eina breytingu á liði sínu frá síðasta leik. Steinþór Freyr fer á bekkinn og inn í lið KA kemur Ásgeir Sigurgeirsson. Hann er að byrja sinn fyrsta leik síðan hann meiddist illa á síðasta ári. Víkingur gerir þrjár breytingar á sínu liði. Þórður Magnússon kemur aftur inn í mark Víkinga, sömuleiðis koma inn í liðið Dofri Snorrason og Ágúst Eðvald. Logi Tómasson fer á bekkinn, sömuleiðis Francisco Marmolejo en Júlíus Magnússon er ekki hóp. Hann er í banni eftir að hafa fengið tvö gul og þar með rautt í síðasta leik.

Byrjunarlið KA
12. Kristijan Jajalo (m)
2. Haukur Heiðar Hauksson
3. Callum WIllams
6. Hallgrímur Jónasson (f)
8. Daníel Hafsteinsson
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
29. Alexander Groven
77. Bjarni Aðalsteinsson

Byrjunarlið Víking R.
32. Þórður Magnússon (m)
5. Mohamed Didé Fofana
6. Halldór Smári Sigurðsson
8. Sölvi Geir Ottesen
9. Erlingur Agnarsson
11. Dofri Snorrason
21. Guðmundur Andri Tryggvason
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
23. Nikolaj Hansen
24. Davíð Örn Atlason
77. Atli Hrafn Andrason

Beinar textalýsingar:
16:00 Stjarnan - Fylkir
16:00 Valur - Grindavík
17:00 KA - Víkingur R.
19:15 FH - KR
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner