Elín Metta Jensen leikmaður Vals hefur verið valinn besti leikmaður fyrsta þriðjungs Pepsi Max-deildar kvenna í kosningu hér á Fótbolta.net.
Það er Origo sem verðlaunar leikmann hvers þriðjungs í Pepsi Max-deildum karla og kvenna í sumar. Lesendur Fótbolta.net fengu að velja milli fjögurra tilnefndra leikmanna og Elín Metta fékk 61% atkvæða.
Hún fékk í verðlaun Sony bluetooth heyrnartól 1000XM3 með noise cancel frá Origo.
Valið er í samvinnu við Heimavöllinnn en sérfræðingar þáttarins tilnefndu fjóra leikmenn. Það voru þær: Agla María Albertsdóttir í Breiðabliki, Cloe Lacasse í ÍBV, Elín Metta Jensen í Val og Sandra Mayor í Þór/KA.
Þessar fjórar eru tilnefndar sem Sony leikmaður fyrsta þriðjungs Pepsi Max! #fotboltinet #Heimavöllurinn
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) June 14, 2019
Athugasemdir