Heimir Guðjónsson og lærisveinar hans í HB fara sáttir inn í kvöldið eftir öruggan sigur í færeysku úrvalsdeildinni í dag.
HB heimsótti Skála ÍF og skoraði Símun Samuelsen, fyrrum leikmaður Keflavíkur, fyrsta mark leiksins eftir aðeins þrjár mínútur.
HB skoraði tvisvar fyrir leikhlé og var staðan 3-0 í hálfleik og leikurinn svo gott sem búinn. Það voru ekki fleiri mörk skoruð í seinni hálfleiknum. Brynjar Hlöðversson lék ekki með HB í dag.
Lokatölur 3-0 fyrir HB sem hefur unnið þrjá leiki í röð og er í fimmta sæti deildarinnar með 27 stig. HB er ríkjandi meistari í Færeyjum.
Á toppi deildarinnar eru Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans í NSÍ með 32 stig.
Athugasemdir