England á leik við Kamerún
16-liða úrslit HM kvenna eru komin í fullt gang og unnu Noregur og Þýskaland sína leiki í gær.
Í dag eru tveir leikir á dagskrá og byrjar fjörið klukkan 15:30, þegar lærlingar Phil Neville í enska landsliðinu mæta Kamerún.
Leikurinn verður sýndur beint á RÚV og eru Englendingar sigurstranglegri.
Heimamenn í Frakklandi eiga svo stórleik við Brasilíu klukkan 19:00, sem verður sýndur á RÚV 2.
Brasilía komst upp úr erfiðum riðli en lenti í 3. sæti á markatölu. Frakkar unnu sinn riðil þægilega, með smá aðstoð frá myndbandstækninni.
Leikir dagsins:
15:30 England - Kamerún (RÚV)
19:00 Frakkland - Brasilía (RÚV 2)
Athugasemdir