Norðurálsmót 7. flokks karla er í gangi á Akranesi yfir helgina og mun ÍATV sýna beint frá úrslitakeppni mótsins í dag.
ÍATV sýndi einnig beint frá leikjum í gær og var mikið áhorf enda einstaklega skemmtilegt sjónvarpsefni.
Dagskráin hefst klukkan 9 þegar Þróttur R. keppir við Víking R. og svo er stanslaust spilað þar til viðureign KR og Fylkis fer af stað klukkan 12:40.
Hægt er að fylgjast með útsendingunni á Youtube rás ÍATV.
Þá er það staðfest að ÍATV verður með beina útsendingu frá Norðurálsmóti @ia_akranes á morgun, sunnudag, líkt og í dag. Móttökur hafa verið frábærar, en hér er leikjaplan morgundagsins á ÍATV-vellinum. #fotboltinet pic.twitter.com/ngKoh72WvG
— ÍATV (@ia_sjonvarp) June 22, 2019
Athugasemdir