Franska knattspyrnutímaritið L'Equipe fullyrðir að ítalska félagið Inter undirbýr risatilboð í Nicolas Pepe hjá Lille.
Fílabeinsstrendingurinn átti frábært tímabil með Lille er liðið kom sér í Meistaradeild Evrópu.
Hann skoraði 23 mörk og lagði upp 12 í 41 leik á síðasta tímabili og vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína.
Arsenal, Liverpool, Manchester United og fleiri stórlið hafa mikinn áhuga á honum en nú virðist fyrsta tilboðið vera að berast til Inter.
L'Equipe segir að Inter sé að undirbúa 90 milljón evra tilboð í Pepe og mjög ólíklegt að önnur lið ætli sér að keppast við það tilboð.
Inter lét Luciano Spalletti fara frá félaginu og tók Antonio Conte við taumunum en hann ætlar sér meðal annars að fá Romelu Lukaku frá Manchester United og þá mun Mauro Icardi líklegast yfirgefa félagið.
Athugasemdir