Pepsi Max-veislan heldur áfram í dag með fjórum leikjum í karlaflokki og tveimur í kvennaflokki.
Íslandsmeistarar Vals eru óvænt í fallbaráttu eftir níu leiki og þurfa nauðsynlega að sigra Grindavík í dag til að vinna sig upp töfluna. Grindavík er þremur stigum fyrir ofan en hefur ekki unnið leik síðan í maí.
Stjarnan mætir þá Fylki og eru liðin jöfn með tólf stig í 4-7. sæti deildarinnar. KA og Víkingur R. eigast svo við á Greifavellinum, en leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Stórleikur FH og KR verður einnig í beinni útsendingu. KR er búið að vinna fimm deildarleiki í röð og getur endurheimt toppsætið af Blikum með sigri í dag. FH-ingar eru þó langt frá því að vera auðveld bráð enda í næsta pakka fyrir neðan, með tólf stig.
Þá fara tveir leikir fram í Pepsi Max-deild kvenna. Þar á Þór/KA heimaleik við botnlið KR og þurfa bæði lið sigur. Akureyringar eru að falla afturúr í toppbaráttunni á meðan KR er aðeins búið að vinna einn deildarleik af sex.
ÍBV mætir svo Val í stórleik, en Valsstúlkur virðast vera óstöðvandi og eru með fullt hús stiga og 20 mörk í plús. ÍBV er í fjórða sæti, níu stigum eftir Val.
Þá fer einn leikur fram á Ísafirði í dag. Hörður á þar heimaleik við Álafoss í C-riðli 4. deildar.
Pepsi Max-deild karla
16:00 Valur-Grindavík (Origo völlurinn)
16:00 Stjarnan-Fylkir (Samsung völlurinn)
17:00 KA-Víkingur R. (Stöð 2 Sport - Greifavöllurinn)
19:15 FH-KR (Stöð 2 Sport - Kaplakrikavöllur)
Pepsi-Max deild kvenna
14:00 Þór/KA-KR (Þórsvöllur)
17:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
4. deild karla - C-riðill - 4. deild karla
14:00 Hörður Í.-Álafoss (Olísvöllurinn)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir