„Svekkelsi. Þetta var örugglega okkar besti leikur í sumar, fengum fullt af færum og erum 2-1 yfir þangað til á 87. mínútu, þá ná þær að jafna. Svo að það var frekar svekkjandi,'' sagði Katrín Ómarsdóttir, leikmaður KR eftir 2-2 jafntefli gegn Þór/KA í Pepsi Max deild kvenna.
Lestu um leikinn: Þór/KA 2 - 2 KR
„Það er extra högg,'' sagði hún þegar spurt var um jöfnunarmark Þór/KA sem kom gegn gangi leiksins. „Það hefði verið svo "sweet" að fá 3 stig, græt þetta í kvöld en ríf svo upp hausinn aftur, af því að það var fullt af góðum hlutum í þessum leik.''
„Uppleggið fyrir leik var að pressa á þær og halda boltanum betur en við höfum verið gera. Höfum verið að sparka svolítið fram og láta gömlu hlaupa!''
Hún endaði á að segja: „Við náðum að spila boltanum vel og skapa okkur færi, sem við höfum ekki verið að gera. Við vildum í raun gera allt betur en við höfum verið að gera.''
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir