Paolo Maldini, yfirmaður knattspyrnumála hjá AC Milan á Ítalíu, vill fá spænska varnarmanninn Theo Hernandez.
Theo er 21 árs gamall og er bróðir Lucas Hernandez sem er á leið til Bayern München.
Theo er vinstri bakvörður og er á mála hjá Real Madrid en hann var á láni hjá Real Sociedad á síðasta ári.
Hann var keyptur til Real Madrid frá Atlético árið 2017 en hann er ekki í myndinni hjá Madrídingum.
Maldini og Theo ræddu saman á Ibiza á dögunum og er því nokkuð ljóst að Theo gæti verið á leið til Milan.
Maldini var að kynna hugmyndafræði Milan fyrir Theo og ætti framtíð leikmannsins að skýrast á næstu vikum.
Athugasemdir