Gary Neville, sparkspekingur á Sky og fyrrum leikmaður Manchester United, hefur tjáð sig um myndband sem Jesse Lingard birti á Snapchat á dögunum.
Lingard er í sumarfríi í Bandaríkjunum með liðsfélaga sínum Marcus Rashford og vinum þeirra.
Í umræddu myndbandi (sem sjá má neðar í fréttinni) er Lingard blótandi og öskrandi á hótelsvítu sinni í Miami. Í myndbandinu sést félagi hans leika eftir samförum á hótelrúminu.
Myndbandið hefur skapað mikil viðbrögð á samfélagsmiðlum og mörgum finnst það ekki viðeigandi frá leikmanni í stóru fótboltafélagi.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, er sagður reiður vegna myndbandsins.
Lingard er 26 ára gamall.
„Þegar ég sé Jesse Lingard spila þá finnst mér hann alltaf leggja mikið á sig. En af hverju að gera eitthvað sem þú verður mögulega gagnrýndur fyrir?" sagði Neville.
„Sem leikmaður þá þarftu að spyrja þig ýmissa spurninga áður en þú gerir hluti. Mun það láta fólki líða betur varðandi mig? Mun ég fá pening vegna þess? Mun það láta þjálfaranum líka betur við mig eða ekki?"
„Ef svörin við þessum spurningum eru nei þá er kannski ekki best að gera það. Við gerum allir mistök og ég hef gert heilan helling af þeim."
„Hugmyndin um að náungi fari á samfélagsmiðla, láti eins og bjáni á meðan hann er ekki að vinna fótboltaleiki og ekki að spila sérstaklega vel er ekki góð blanda."
„En hann leggur sig allan fram, er ungur og samfélagsmiðlar eru nútímaform fjölmiðla. Við jöfnum okkur á þessu."
„Jesse Lingard drekkur ekki mikið. Fyrir 20 árum, þá hefði fótboltamaður farið í frí og verið mjög fullur í fjórar vikur. Hvort er verra - að grínast á samfélagsmiðlum eða vera mjög fullur í fjórar vikur?"
Rashford and Lingard.
— Dave Ellis 🤷🏼♂️ (@fullback03) June 20, 2019
Single handedly wiping the gloss off the once great Manchester United. pic.twitter.com/GEAsrUjloe
Athugasemdir