Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar hefur tjáð fyrrum liðsfélögum sínum hjá Barcelona að hann sé á leið til félagsins. Þetta kemur fram í spænska miðlinum Sport.
Neymar samdi við PSG árið 2017 en hann varð þá dýrasti leikmaður heims.
Lífið í París hefur reynst honum erfitt þrátt fyrir ótrúlega tölfræði en hann hefur skorað 51 mark í 58 leikjum í öllum keppnum og þá lagt upp 29 mörk.
Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð hans í Frakklandi en helstu miðlar í Frakklandi og á Spáni telja að hann sé á leið til Barcelona.
Samkvæmt Sport þá hefur Neymar tjáð fyrrum liðsfélögum sínum hjá Barcelona að hann sé á leið til félagsins en hann átti að hafa sagt orðrétt: „Slakið á, ég er á leiðinni," .
Talið er að Barcelona sé reiðubúið að láta PSG fá 100 miljón evra og Philippe Coutinho í skiptum fyrir Neymar.
Athugasemdir