Spænska kvennalandsliðið er meðal keppenda á HM í Frakklandi. Liðið komst upp úr riðli sínum og mætir sterku liði Bandaríkjanna í 16-liða úrslitum næsta mánudag.
Real Madrid mun tefla fram kvennaliði í knattspyrnu í fyrsta sinn í sögunni og tekur þannig þátt í þeirri miklu sókn sem kvennaknattspyrna er í.
Áhugi á kvennaknattspyrnu hefur aukist til muna undanfarin ár og þá sérstaklega á Spáni. Þar horfðu rúmlega 60 þúsund áhorfendur á Atletico Madrid leggja Barcelona að velli á Wanda Metropolitano leikvanginum fyrr á árinu og bættu næstum 100 ára gamalt aðsóknarmet á kvennaleik.
Ekki hefði verið pláss fyrir Real Madrid í efstu deild kvenna en félagið fékk leyfi til að kaupa sæti í deildinni af öðru félagi, samkvæmt spænskum fjölmiðlum. Þeir segja að Real hafi keypt sæti CD Tacon, sem mun spila aftur í B-deildinni í haust þrátt fyrir að hafa komist upp. Real Madrid er sagt hafa greitt 500 þúsund evrur fyrir sætið.
Real ætlar að leggja talsvert fjármagn í liðið hjá sér og þess er mikil þörf til að bjóða stórliðum deildarinnar byrginn. Nágrannarnir í Atletico hafa unnið deildina síðustu þrjú ár.
Athugasemdir