FH fékk KR í heimsókn á Kaplakrikavöll í kvöld í Pepsí Max-deild karla og vann KR 1-2 útisigur. Rúnar Kristinsson þjálfari KR sagði að sitt lið hefði verið miklu betri aðilinn á vellinum í kvöld og átt sigurinn skilið.
Lestu um leikinn: FH 1 - 2 KR
„Eins og í öllum öðrum sigrum þurfum við að hafa fyrir honum, mér fannst við samt vera miklu betri en FH-ingar í dag nánast allan leikinn. Það var síðan óþarfi að hleypa þeim inn í leikinn en við vorum nálægt því að skora þriðja markið og sennilega nær því en FH-ingar að jafna leikinn."
Rúnar er ánægður með gengi liðs síns það sem af er tímabili en segist vita það að þeir mega ekki slaka á því það er stutt á milli í þessu.
„Það er betra að hafa bara tveggja hesta frekar en fimm eða sex en það er svo mikið eftir af mótinu, ef þú tapar 2 leikjum í röð og önnur vinna tvo í röð þá færð þú 0 stig og hin liðin 6 stig og þá ertu ekki á toppnum lengur"
Skúli Jón Friðgeirsson spilaði sínar fyrstu mínútur á tímabilinu í kvöld eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg á æfingu í vetur. Rúnar segir frábært að fá Skúla inn en segir að þeir verði að koma honum varlega inn í liðið.
„Það er skarð fyrir skildi að fá Skúla inn í liðið, Skúli er búinn að æfa mjög vel undanfarin mánuð en við förum auðvitað varlega með hann. Hann lenti í því á æfingu í gær að skalla boltann og lendir aftur í því í dag og það hjálpar, gefur honum sjálfstraust. Hann segir til hvenær hann er klár í að koma inná og við tökum enga sénsa með það."
Athugasemdir