„Ég er hrikalega ánægður með þennan sigur. Það er ótrúlega mikilvægt fyrir okkur að fá sigur á þessum tímapunkti," sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 5-1 sigur gegn Fylki í Pepsi Max-deildinni í dag.
Lestu um leikinn: Stjarnan 5 - 1 Fylkir
„Ég er hrikalega ánægður og stoltur af drengjunum. Frábær frammistaða."
Það eru meiðsli að hrjá leikmannahóp Stjörnunnar þessa stundina. Í dag þurfti Þórarinn Ingi Valdimarsson af fara af vellinum með sjúkrabíl.
„Mér skilst að þetta séu krossböndin, við höldum það en við vitum ekki almennilega fyrr en læknar eru búnir að greina þetta. Hann var sárkvalinn, en Þórarinn er ekki vanur að væla neitt. Þetta leit ekki vel út."
„Það bætist á meiðslalistann en við erum með ágætis hóp og það er mikilvægt að hafa spilað á mörgum leikmönnum í sumar þegar svona kemur upp á."
„Við erum í toppformi, liðin mín eru alltaf í toppformi," sagði Rúnar að lokum.
Athugasemdir