FH fékk KR í heimsókn á Kaplakrikavöll í kvöld í Pepsí Max-deild karla og vann KR 1-2 útisigur. Skúli Jón Friðgeirsson var að spila sinn fyrsta leik á tímabilinu fyrir KR og hann var mjög ánægður að vera kominn aftur eftir erfið meiðsli.
Lestu um leikinn: FH 1 - 2 KR
„Mér líður ógeðslega vel, þetta er mjög mikill léttir og ég átti bara mjög erfitt með mig eftir leik. Ég hélt á tímabili að þetta væri bara búið þannig að þetta er ofboðslega sætt fyrir mig persónulega og gott að koma inn í liðið þegar gengur svona vel."
Skúli skallaði sinn fyrsta bolta í langan tíma í gær og er búinn að æfa undanfarið án þess að finna neitt og er að komast af stað.
„Ég er búinn að æfa kannski í 10 daga án þess að finna neitt, fyrsta skipti sem ég skalla bolta í gær og ég finn ekkert fyrir því. Ég hugsaði út í að spila með hjálm en ég kynnti mér það aðeins og það gerir víst lítið við þessu svo ég ákvað að sleppa því bara."
Athugasemdir