Afturelding hefur lagt fram tvö tilboð í Söru Montoro, framherja Fjölnis. Þetta staðfestir Sigurbjartur Sigurjónsson, formaður meistaraflokksráðs hjá Aftureldingu.
Fjölnir hefur hafnað báðum tilboðum Aftureldingar.
Sara er 17 ára gömul en hún hefur skorað samtals fimmtán mörk í 28 leikjum með Fjölni í næstefstu deild undanfarin tvö ár.
Sara skoraði átta mörk í fyrra og sjö mörk árið 2018.
Afturelding og Fjölnir leika bæði í Lengjudeildinni í sumar. Afturelding mætir Víkingi R. á föstudag en á sama tíma leikur Fjölnir við Hauka.
Athugasemdir