Hildur Antonsdóttir, leikmaður Breiðabliks, er með slitið krossband í hné og verður ekki meira með liði Breiðabliks í sumar.
Krossbandið slitnaði á æfingu í gær og Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, staðfesti tíðindin í samtali við Fótbolta.net eftir 6-0 sigur Breiðabliks á KR í kvöld.
Krossbandið slitnaði á æfingu í gær og Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, staðfesti tíðindin í samtali við Fótbolta.net eftir 6-0 sigur Breiðabliks á KR í kvöld.
Hildur átti frábært ár með Blikum á síðasta ári og var tilnefnd sem leikmaður ársins. Hún var verðlaunuð frammistöðu sína með því að fá kall í íslenska landsliðið sem fór á æfingamóti á Spáni í febrúar.
Hún er 25 ára gömul og hefur spilað 168 meistaraflokksleiki með Breiðabliki, HK/Víkingi og Val og hefur skorað í þeim 28 mörk.
Athugasemdir