Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 23. júní 2020 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Meunier á leið til Dortmund
Thomas Meunier
Thomas Meunier
Mynd: Getty Images
Belgíski hægri bakvörðurinn Thomas Meunier er á leið til þýska félagsins Borussia Dortmund en þýski miðillinn BILD fullyrðir þetta og Sky Sports tekur undir.

Meunier, sem er 28 ára gamall, hefur spilað með Paris Saint-Germain síðustu fjögur árin en hann verður samningslaus í lok vikunnar og ákvað að framlengja ekki samning sinn við félagið.

Hann er nú á leið til þýska félagsins Borussia Dortmund og mun hann skrifa undir fjögurra ára samning.

Meunier var boðið að klára úrslitakeppni Meistaradeildarinnar með PSG en hann hafnaði þvi boði.

Þetta gæti þýtt það að Achraf Hakimi mun ekki snúa aftur til Dortmund en hann hefur verið á láni hjá félaginu frá 2018. Sá samningur rennur hins vegar út á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner