Diego Armando Maradona, einn besti knattspyrnumaður allra tíma og núverandi þjálfari Gimnasia í Argentínu, virðist hafa gaman af lífinu en myndband er í dreifingu á samfélagsmiðlum af honum dansa í heimahúsi.
Maradona lék með liðum á borð við Boca, Barcelona og Napoli auk þess sem hann var magnaður með argentínska landsliðinu. Hann vann HM árið 1986 og reyndist sigurmark hans gegn Englendingum eitt frægasta mark allra tíma er hann skoraði með hendinni.
Hann síðar þjálfaði argentínska landsliðið en ratar oft í fjölmiðla fyrir hluti sem hann gerir utan vallar. Hegðun hans á HM í Rússlandi var tildæmis afar undarleg en hann skemmtir sér konunglega þrátt fyrir alla þessa athygli.
Maradona var staddur heima hjá sér að dansa með eiginkonu sinni eða svo virðist áður en hann girti niðrum sig. Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.
Una pena este Maradona, no se cuida y no le cuidan. pic.twitter.com/yfzEGU0qh5
— Gustavo Fretes GEF (@poharoysa) June 22, 2020
Athugasemdir