Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 23. júní 2020 22:37
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Sigmundína Sara: Börðumst fyrir þessu stigi í dag
Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir
Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur sótti sitt fyrsta stig í Pepsi-Max deild kvenna í kvöld þegar þær gerðu 2-2 jafntefli við Fylki eftir fjörugar lokamínútur.

"Gott að fá stig í deildinni, við bara börðumst fyrir þessu stigi í dag. Svekkjandi mark sem við fengum á okkur í byrjun og svo vinnum við okkur jafnt og þétt inn í leikinn. Mér fannst þetta bara verðskuldað." sagði Sigmundína Sara leikmaður Þróttar, sem átti góðan leik í vörninni í kvöld og spilaði síðari hálfleik með fyrirliðabandið.

Lestu um leikinn: Fylkir 2 -  2 Þróttur R.

"Við erum alveg að klikka núna saman, verður alltaf betra og betra með hverjum leik. Það eru aðeins róteringar í liðinu hjá okkur en það kemur maður í manns stað og þetta er bara að fúnkera vel." sagði Sigmundína spurð að því hvort hún sé ánægð með hvernig liðið er að spila í upphafi móts.

Þróttur mætir Blikum í næstu umferð.

"Það er bara flott, eitt lið í þessari í deild og 100% gott lið. Mjög gott lið og það verður erfitt verkefni eins og á móti Val. Við erum bara spenntar." sagði Sigmundína Sara að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner