Fotbolti.net
23.07.19 - 22:30
Helga Katrín Jónsdóttir

Steini: Ég er sáttur með sigurinn

Auglýsing
Steini: Ég er sáttur með sigurinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Blikar unnu í kvöld 2-1 sigur gegn sprækum Selfyssingum í Pepsi-Max deild kvenna og var Steini sáttur með að taka 3 stig.
"Ég er sáttur með sigurinn og heilt yfir sáttur við margt í leiknum. Óþarfi að fá á sig mark en Selfoss náttúrulega alltaf líklegar til að gera eitthvað enda með mjög gott lið og það er erfitt að spila á móti þeim. Þær láta öll lið hafa fyrir sér."



Steini var mjög ósáttur með dómgæsluna oft á tíðum í leiknum en vildi þó lítið tjá sig um það.



"Það sáu það allir að það var ýmislegt að."



Blikastelpur etja næst kappi við Keflavík á laugardaginn.



"Já það er bara enn einn leikurinn. Keflavíkurliðið er bara flott lið, mjög stígandi í allt sumar. Við þurfum að spila vel í 90 mínútur þar ef við viljum fá eitthvað úr þeim leik."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.