Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. júlí 2019 14:00
Elvar Geir Magnússon
Útilokar að Bale verði lánaður
Framtíð Gareth Bale er í óvissu.
Framtíð Gareth Bale er í óvissu.
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður velska sóknarleikmannsins Gareth Bale segir útilokað að hann verði lánaður frá Real Madrid.

Bale er ekki í áætlunum Zinedine Zidane og hefur verið orðaður við kínversku ofurdeildina.

„Gareth er einn besti leikmaður plánetunnar. Ég get fullyrt það að hann verður ekki lánaður í neitt félag," segir umboðsmaðurinn Jonathan Barnett.

„Gareth er leikmaður Real Madrid og eins og staðan er verður hann það áfram. Ef eitthvað kemur upp sem hentar báðum aðilum þá gætu hlutirnir breyst og hann gæti verið farinn skyndilega. Svo gæti hann mögulega verið áfram leikmaður Real eftir þrjú ár þegar samningi hans lýkur."

Sjá einnig:
Zidane: Bale neitaði að spila
Athugasemdir
banner
banner
banner