Aron Elís Þrándarson kom inn á sem varamaður á 36. mínútu hjá OB sem lagði Horsens 3-1 í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Ragnar Sigurðsson var fjarri góðu gamni vegna meiðsla þegar FC Kaupmannahöfn lagði AaB 1-0 á útivelli.
Ragnar Sigurðsson var fjarri góðu gamni vegna meiðsla þegar FC Kaupmannahöfn lagði AaB 1-0 á útivelli.
Í sænsku úrvalsdeildinni kom enginn Íslendingur við sögu í kvöld.
Hins vegar skoraði Brandur Olsen, fyrrum miðjumaður FH, jöfnunarmark á 95. mínútu fyrir Helsingborg í 1-1 jafntefli gegn Örebro.
Markið hjá Brandi má sjá hér að neðan.
Helsingborgs IF ger ALDRIG upp! Kvittering i 95:e minuten mot ÖSK pic.twitter.com/4FtBLnJY4T
— Dplay Sport 🇸🇪 (@Dplay_Sport) July 23, 2020
Athugasemdir