Varnarmaðurinn Jón Guðni Fjóluson er laus allra mála hjá Krasnodar í Rússlandi.
Samningur hans átti að renna út eftir næsta tímabil en félagið tilkynnti að báðir aðilar hefðu komist að samkomulagi um riftun.
Jóni Guðna er óskað velfarnaðar en hann gekk í raðir Krasnodar í ágúst 2018 og lék alls 28 leiki fyrir félagið. Hann kom ekkert við sögu í níu síðustu deildarleikjum liðsins.

Jón Guðni er 31 árs og hefur leikið sextán A-landsleiki. Hann hefur leikið í atvinnumennsku erlendis samfleytt í níu ár.
Hann lék með Sundsvall og Norrköping í Svíþjóð áður en hann hélt til Rússlands.
Athugasemdir