Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 23. júlí 2020 12:19
Elvar Geir Magnússon
Vestramenn glöddu harða stuðningsmenn ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrír harðir stuðningsmenn ÍBV skelltu sér með liðinu til Ísafjarðar í gær þar sem Vestri og ÍBV gerðu 3-3 jafntefli í Lengjudeildinni.

Stuðningsmennirnir fengu gjafir frá heimamönnum, áritaðar treyjur og trefla.

„Geggjaðir stuðningsmenn þessir eyjastrákar, þeir mæta á alla leiki. fótbolta og handbolta," skrifaði íþróttalýsandinn Orri Rafn Sigurðarson á Twitter.

„Vel gert Vestri. Það kæmi mér lítið á óvart ef að Vestri væri þeirra næst uppáhalds lið eftir þetta. Til fyrirmyndar."

ÍBV hrósaði Vestra fyrir framtakið: „Vestri tók vel á móti ÍBV og stuðningsmönnum í gær en þá sérstaklega þessum þremur meisturum, Birgi Reimari, Stefáni og Gumma."

Formaður Eyjamanna, Daníel Geir Moritz, skrifaði á Twitter: „Notum fótbolta til að sameina okkur en ekki sundra."



Athugasemdir
banner