banner
   fös 23. ágúst 2019 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Adam Árni og Rúnar Þór framlengja við Keflavík
Rúnar Þór hefur fimm sinnum verið í liði umferðarinnar á Fótbolta.net í sumar.
Rúnar Þór hefur fimm sinnum verið í liði umferðarinnar á Fótbolta.net í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það hefur verið nóg að gera á skrifstofu Keflvíkinga undanfarna daga og vikur.

Keflavík leikur í Inkasso-deild karla og er þar í sjötta sæti fyrir leik sinn gegn Þrótti í Laugardal í kvöld.

Keflavík er búið að framlengja við tvo leikmenn sem hafa verið í stóru hlutverki í sumar; Rúnar Þór Sigurgeirsson og Adam Árna Róbertsson.

Rúnar Þór, sem er fæddur 1999, hefur fimm sinnum verið valinn í lið umferðarinnar hér á Fótbolta.net í sumar. Adam Árni, sem er einnig fæddur 1999, er kominn með fimm mörk í sjö deildarleikjum í sumar.

„Það er nóg búið að vera að gera á skrifstofunni síðustu vikur. Við kláruðum langtíma samninga við tvo toppmenn, þá Rúnar Þór og Adam Árna. Við erum afskaplega ánægðir með að hafa tryggt okkur þjónustu þessara stráka til næstu ára enda falla þeir frábærlega að þeirri hugmyndafræði sem þjálfarar og stjórn Keflavíkur vinna eftir. Að byggja á ungum efnilegum leikmönnum til framtíðar," segir í tilkynningu Keflavíkur.
Athugasemdir
banner
banner
banner