Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 23. september 2018 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía í dag - Emil og Ronaldo mætast
Emil Hallfreðsson í baráttunni
Emil Hallfreðsson í baráttunni
Mynd: Getty Images
Sex leikir fara fram í fimmtu umferð í Seríu A á Ítalíu í dag en Emil Hallfreðsson fær Juventus í heimsókn.

Torino og Napoli mætast í fyrsta leik dagsins klukkan 10:30 áður en Roma heimsækir Bologna. Lazio og Genoa eigast þá við í Róm og þá fær Chievo lið Udinese.

Gennaro Gattuso og hans menn í AC Milan fá Atalanta á San Siro áður en Emil Hallfreðsson og félagar í Frosinone mæta meisturunum í Juventus. Cristiano Ronaldo verður væntanlega í liði Juventus.

Leikir dagsins:

10:30 Torino - Napoli (Stöð 2 Sport 2)
13:00 Bologna - Roma (Stöð 2 Sport 4)
13:00 Lazio - Genoa
13:00 Chievo - Udinese
16:00 AC Milan - Atalanta (Stöð 2 Sport 4)
18:30 Frosinone - Juventus (Stöð 2 Sport 3)
Athugasemdir
banner
banner