Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   sun 23. september 2018 16:56
Kristófer Jónsson
Rúnar Kristins: Komu hingað til að sækja eitt stig
Rúnar var ekki ánægður með jafnteflið
Rúnar var ekki ánægður með jafnteflið
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var að vonum svekktur eftir 1-1 jafntefli sinna manna gegn Fylki í næstsíðustu umferð Pepsi-deildar karla í dag.

„Það eru vonbrigði að fá þetta mark á okkur þegar að við erum með leikinn í okkar höndum. Maður hefði viljað taka þrjú stig hérna á heimavelli." sagði Rúnar eftir leik.

Lestu um leikinn: KR 1 -  1 Fylkir

Fyrri hálfleikur leiksins var rosalega tíðindalítill og skapaði hvorugt lið sér einhver færi af viti. Fylkismenn spiluðu þéttan og agaðan varnarleik sem að KR áttu í mestu vandræðum með.

„Þeir komu bara hingað til að sækja eitt stig. Það var ekki fyrr en að við komumst yfir sem að þeir þurftu að sækja þetta stig og þá breytist leikurinn örlítið. Mér fannst við samt hafa algjöra stjórn á þessu og fáum á okkur eitt mark eftir skyndisókn sem að við hefðum alveg getað sleppt."

Eftir leiki dagsins sitja KR-ingar ennþá í fjórða sæti deildarinnar með jafn mörg stig og FH sem að er sæti neðar. Það er því ljóst að Evrópubaráttan heldur áfram fram á síðustu sekúndu.

„Við þurfum bara að hugsa um okkur og reyna að standa okkur í Víkinni. Ef að við vinnum þar eigum við góða möguleika." sagði Rúnar um lokaumferðina.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner