Fotbolti.net
23.09.19 - 18:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gary Neville: Ekki gera eins með Solskjær og með Mourinho

Gary Neville: Ekki gera eins með Solskjær og með Mourinho
Canon

Mynd: Getty Images

Gary Neville, goðsögn hjá Manchester United, hefur áhyggjur af stöðu mála hjá Manchester United eftir erfiða byrjun á tímabilinu.

United tapaði í gær, 2-0, á útivelli gegn West Ham. Neville um stöðu mála í hlaðvarpi sínu hjá Sky Sports.

Neville segir það mikilvægt að stuðningsmenn þurfi að sýna Ole Gunnar Solskjær, stjóra liðsins, stuðning og það sama með stjórnarmenn félagsins.
Pirringur stuðningsmanna má ekki verða til þess að forráðamenn fari út af sporinu, eins og Neville orðaði það, eins og þegar félagið rak David Moyes, Louis van Gaal og Jose Mourinho.

„Þjálfarinn þarf að fá stuðning stjórnarinnar í leikmannamálum til að fá það sem vantar í hópinn. Það hefur ekki verið gert í átta ár núna."

„Þeir hafa komið með peninga en hugmyndafræðin á bakvið er gölluð. Ef félagið hefði sett stefnuna eins og hún er núna, að kaupa unga Englendinga, þá væri liðið í góðum málum núna."

„Félagið getur ekki haldið áfram að losa stjórana, það þarf að styðja stjórann. Þó þú værir besti stjóri heims gætir þú ekki gert neitt með þetta lið eins og það er í dag. Þetta mun taka tíma, það er ekki til nein einföld og snögg lausn."


Neville tjáði sig einnig um erfiðleika United á leikmannamarkaðnum.

„Dagarnir eru taldir þar sem United gat keypt leikmenn ódýrt frá miðlungsliðum í deildinni eða öðrum topplið. Rooney kom frá Everton, Berbatov og Carrick frá Tottenham og Ferdinand frá Leeds. Þessi lið vilja ekki selja núna nema peningurinn sé stjarnfræðilegur."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton10+1720
4Chelsea10+417
5Everton10+216
6Liverpool10+216
7Brentford10+715
8Bournemouth10+215
9Leeds10+214
10Tottenham10-112
11Newcastle10-312
12Aston Villa9-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Crystal Palace10-128
19Man Utd9-57
20Sunderland10-106
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.